Vinnudagar í Raggagarði.
Vinnudagar verða í Raggagarði sunnudaginn 19. júní og sunnudaginn 26 júní frá kl: 13.00 til kl: 16.00.
Nú þarf heldur betur að taka til hendinni við ýmislegt og gera garðinn klárann fyrir sumarið. Það hefur ekki farið fram hjá fólki hversu kalt hefur verið í vor en það fer vonandi að breytast þessa helgi. Á morgun vantar vaska menn og konur við að jarðsetja girðingastaura og setja upp tilbúna girðingafleka sem garðurinn fékk frá Súðavíkurhrepphrepp. Einnig að klippa tré og runna og kantskera og snyrta beðin. Tína upp grjót af malarsvæðinu og lagfæra motturnar undir kastalanum. Eitthvað fyrir alla.
Raggagarður býður alla Vestfirðinga, heimamenn, sumarbúa eða gesti Vestfjarða velkomna á vinnudag í garðinum jafnt stóra sem smáar hendur. Fátt er skemmtilegra en að vinna saman í góðum félagskap og leggja sitt á mörkum fyrir okkar framtíð og barnanna okkar.
Einnig geta starfsmannafélög, fyrirtæki, foreldrafélög eða aðrir hópar haft samband og komið og unnið í garðinum eina kvöldstund ef haft er samband við Boggu í síma 8234566 eða senda tölvupóst á raggagardur@raggagardur.is
Deila með öðrum







