Mikið líf og fjör í Raggagarði í sumar
Það hefur verið mikið líf í Raggagarði í sumar. Askur og Embla lentu í garðinum í byrjun júlí. Þær eru gjöf frá Lappset í Finnlandi.Annað markvert var:
- Barði og Dísa lagfærðu pallinn á aparólunni og smíðuðu ramp og sæti á pallinn í vor. Vinnudagur var haldinn 24. júní í vor og mættu fjölmargir vinir garðsins til að hjálpa til.
- Kraftakeppnin Vestfjarðarvíkingurinn var haldið í annað sinn í garðinum þann 3. júlí að vistöddu fjölmenni.
- Ungmennafélagið Geisli grillaði fyrir sína félagsmenn í garðinum.
- Málfríður Markan heimsótti Raggagarð.
- Vinnuskóli Súðavíkurhrepps vann í tvo vinnudaga í garðinum við hreinsun á gróðri og fl.
Deila með öðrum







