Leiktækin í garðinum.
Aparóla /Aerilal runway.
Aparólan er fyrsta leiktækið sem pantað var í Raggagarð vorið 2004. Aparólan er mjög vinsælt leiktæki fyrir 6 ára börn og eldri. Hún var sett upp í hæstu leyfilega stöðu og rennur því hratt. Ekki er leyfilegt að ýta á þann sem er að renna sér. Alls ekki vera tveir í einu í sætinu og ekki standa. Slíkt getur valdið slysum.
Aparólan er alltaf vinsæl
Róla / Swing Frame.
Róla fyrir 2 er staðsett á neðra svæðinu. Hún er ætluð fyrir börn 1 árs og uppúr. Félag Íslenskra hljómlistarmanna styrktu Raggagarð um róluna árið 2005.
Vilborg og Þórir Garibaldi sonur Vilborgar róla sér.
Hringekja / Crousel
Hringekja var keypt 2005. Kennarasamband Íslands styrkti garðinn til að kaupa þetta leiktæki. Það er staðsett á neðra svæðinu í Raggagarði. Leiktækið er ætlað 2-4 ára börnum.
Heilsuræktartæki / Sport group í Orkulundinum .
Heilsuræktartækið Sport Group er staðsett á efra svæðinu í lundi sem hefur fengið nafnið Orkulundurinn. Orkan Bensín styrkti Raggagarð árið 2005 um tækið og einnig trjágróðurinn umhverfis Orkulundinn. Tækið er ætlað öllum aldurshópum til þjálfunar í líkamsrækt en jafnframt leiktæki fyrir alla í fjölskyldunni til að spreyta sig á. Það er til dæmis gott fyrir skokkara að enda skokkið í Orkulundinum og taka nokkrar teygjur og magaæfingar.
Sveiflustaur / Rock´n´roll.
Sveiflustaurinn er á efra svæðinu. Þetta tæki er ætlað 12 ára og eldri. Það þurfa að vera tveir saman, svipað þungir, til að ná góðri sveiflu í tækinu. Þetta tæki sveiflast í hringi en líka er hægt að setjast ofaná sætið og njóta útsýnis og halda jafnvægi í leiðinni. Félag Álftfirðinga- og Seyðfirðinga Vestra styrktu garðinn um þetta tæki árið 2005.
Twist.
Twist er leiktæki fyrir 12 ára og eldri. Fjórir einstaklingar geta sveiflað sér saman í þessu tæki. Hægt er að ná ágætum snúningi í þessu tæki. Leiktækið var keypt árið 2005.
Vegasalt / See Saw .
Vegasalt fyrir fjóra er á neðra svæðinu fyrir yngri börnin. Vegasaltið er ætlað börnum 3 ára og eldri. Vegasaltið var keypt 2004. Skemmtilegt tæki sem allir í fjölskyldunni geta verið saman í.
Vegasalt – Ramba.
Gamla góða vegasaltið frá gamla kleikskólanum við Höfðabrekku. Uppgert árið 2008. Ætlað börnum 3-10 ára
Kastali /Motoric Workout.
Kastalinn sem var keyptur vorið 2007. Pokasjóður og Súðavíkurhreppur styrktu kaupin á þessu leiktæki. Þetta leiktæki er aðeins ætlað 8. ára og eldri.
Klifurgrind.
Þessi Klifurgrind var á lóð leikskólans við Höfðabrekku. Búið er að mála að nýju og setja upp á neðra svæðinu sem ætlað er börnum 3-8 ára. Klifurgrindin var sett upp 2005.
Járnbrautalest/ Train.
Járnbrautalest fyrir yngstu börnin 1-8 ára. Pokasjóður Verslunarinnar styrkti kaupin á þessari lest sem keypt var sumarið 2007.
Rugguhestur / Horse og Gíraffi / Giraffe.
Rugguhestur var keyptur síðsumars 2008 og var settur upp í garðinum vorið 2009. Rugguhesturinn er á neðra svæðinu og er ætlaður 2 til 8 ára börnum.
Snúningssæti / Tango
Leiktækið var keypt síðsumar 2008 og var sett í garðinn vorið 2009. Leiktækið er 2 sæti sem snúast í hringi. Leiktækið er á efta leiksvæðinu og er ætlað börnum 6 til 99 ára.
Snúningsveifla / Waltz with Speed Restricder.
Keypt sumar 2008 og sett niður sumar 2009. Það er ætlað fyrir börn 6 til 99 ára aldur. Flott tæki fyrir alla fjölskylduna. Fer bæði upp og niður og vaggar. Hætta er á að fólk verði pínulítið ringlað í þessu tæki ef því er snúið hratt.
























