Raggagarður opnar 5. júní í Sumar
Vegna kulda í vor og framkvæmda verður Raggagarður ekki opnaður fyrr en 5 júní í ár.
Stórframkvædir standa til í sumar í Raggagarði. Það koma átta sjálfboðaliðar frá Seeds samtökunum 30. maí til að vinna í garðinum í tvær vikur. Gistiheimilið Swanfjord Súðavík og Súðavíkurhreppur styrkir garðinn um framfærslu þeirra og gistingu. Ætlunin er að mála leiktækin sem eru í Raggagarði og mála bekki og borð ásamt því að bæta við mottum við kastalann og girðingavinnu. Einnig verður gróðurinn í garðinum snyrtur ásamt fleirum lagfæringum.
Einnig verður byrjað á útivistarsvæðinu innan til við garðinn, en þar er ætlunin að setja upp svið og mön í boga fyrir áhorfendur. Einnig verður gerð tjörn á útivistarsvæðinu. Hjónin frá Hvítanesi gáfu garðinum holugrjót til að setja á útivistarsvæðið.
Félagið Raggagarður sendi fyrirtækjum á Vestfjörðum bréf um áramótin og óskaði eftir styrk vegna framkvæmdanna í sumar að upphæð 30.000 kr per fyrirtæki. Fiskmarkaður Bolungarvíkur, Geirnaglinn ehf Ísafirði, Rauðkolur ehf ísafirði og Tungusilungur efh Tálknafirði hafa styrkt garðinn vegna þessa.
<a href=“http://raggagardur.com/wp-content/uploads/2011/05/290720106.jpg“><img src=“http://raggagardur.com/wp-content/uploads/2011/05/290720106.jpg“ alt=“" title=“290720106″ width=“250″ height=“188″ /></a>
